Björn Helgi náði góðum árangri í pílukeppnum sem fram fóru í Færeyjum um helgina.

Pílufélag Fjallabyggðar átti þar þrjá fulltrúa sem stigu á svið á alþjóðlegum vettvangi. Þeir Björn Helgi Ingimarsson, Halldór Ingvar Guðmundsson og Ingimundur Loftsson.

Á föstudag Björn Helgi þátt í tvímenningi ásamt Halldóri Ingvari Guðmundssyni. Þeir félagar stóðu sig vel og komust alla leið í átta liða úrslit af alls 80 liðum sem tóku þátt í keppninni.

Á laugardag keppti Björn Helgi í Faroe Islands Dart Open og hélt áfram góðu gengi sínu. Helginni lauk síðan með þátttöku hans í Tórshavn Darts Open í unglingaflokki, þar sem hann náði sínum besta árangri.

Björn Helgi endaði í öðru sæti eftir afar spennandi úrslitaleik sem lauk með 4–3 sigri mótherjans.

Tengd frétt:

Mynd: aðsend