Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) vann sannfærandi sigur á liði Dalvíkur í æfingaleik sem fram fór á Dalvík í gær. Leiknum lauk með 3–6 sigri KF eftir fjöruga viðureign.
KF-ingar sýndu góðan sóknarleik og nýttu færin sín vel. Jhoel var atkvæðamestur í liði KF og skoraði þrennu og Hilmar Sím lagði sitt af mörkum með tveimur mörkum. Þá skoraði Siggi eitt mark og innsiglaði þar með öruggan sigur liðsins.
Leikurinn var liður í undirbúningi liðanna fyrir komandi verkefni og ljóst að KF er á góðri leið inn í tímabilið ef marka má frammistöðuna í þessum leik.
Mynd: Facebook / Knattspyrnufélag Fjallabyggðar





