Á föstudaginn kom út lagið On The Run með GREYSKIES.
GREYSKIES er listamannsnafn Steinars Baldurssonar sem er 25 ára lagahöfundur og pródúsent.

GREYSKIES gerði nýlega útgáfusamning við Öldu Music og hefur nú þegar gefið út lögin Numb, Hurts So Bad og Rhoads af 11 laga plötu sem kemur út seinna á þessu ári. En platan er unnin í samstarfi við pródúsentinn Pálmar Ragnar Ásgeirsson.

On The Run á Spotify