
JE Vélaverkstæði er rótgróið fyrirtæki á Siglufirði með langa sögu í þjónustu við sjávarútveg og iðnað.
Hjónin Hjalti Gunnarsson og Sandra Finnsdóttir hafa keypt 70 prósenta hlut í JE Vélaverkstæði á Siglufirði af þeim Guðna Sigtryggsyni og Gunnari Júlíussyni. Hjalti og Sandra tóku formlega við rekstrinum í gær þann 1. apríl. Þeir Guðni og Gunnar tóku sjálfir við fyrirtækinu sama dag árið 2001 og munu þeir verða nýjum eigendum innan handar við reksturinn.
JE Vélaverkstæði er rótgróið vélaverkstæði og bátasmiðja á Siglufirði. Fyrirtækið hefur byggt upp traust viðskiptasambönd við stór og smá fyrirtæki og býr yfir öflugri aðstöðu, meðal annars bátaskýli og gámalyftara sem ræður við allt að 36 tonna báta. Starfsmenn eru í dag 14 talsins og reksturinn hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum.

Hjónin Sandra Finnsdóttir og Hjalti Gunnarsson hafa tekið við rekstri JE Vélaverkstæðis á Siglufirði.
Frá sjómennsku yfir í rekstur á landi
Hjalti, sem er menntaður vélfræðingur og hefur einnig lokið námi í rafvirkjun, kemur úr sjómennsku þar sem hann hefur starfað frá árinu 1997. Hann segir reynsluna af sjónum nýtast vel í nýju hlutverki.
„Ég byrjaði til sjós árið 1997 og hef unnið á togurum þar sem ég hef lent í alls konar verkefnum og áskorunum sem hafa byggt upp mikinn reynslubanka. Ég vonast til að geta nýtt þessa reynslu til að leysa verkefni fyrir viðskiptavini okkar,“
segir Hjalti í samtali við Trolli.is.
Sandra hefur starfað í um tvo áratugi við bakvinnslu hjá lífeyrissjóðum og stundar nú nám í bókfærslu. Hún mun taka við hlutverki sem snýr að lagerhaldi og innkaupum hjá fyrirtækinu.
„Ég er búin að vera í læri hjá Ósk, eiginkonu Guðna, undanfarnar vikur og það er mikið að læra. Hún hefur þó verið afar þolinmóð og leiðbeint mér vel,“
segir Sandra.
Aðspurður um hvernig hugmyndin að kaupunum kviknaði segir Hjalti að hún hafi verið lengi í mótun.
„Frá því að fyrirtækið fór í söluferli togaði þetta í mig að fara í land, en ég hélt því fyrir mig lengi. Þegar Sandra var farin að leita sér að nýjum tækifærum nefndi ég þetta við hana og spurði hvort við ættum að taka þessa ákvörðun saman. Hún var til í slaginn og það skipti sköpum.“
Handsalað yfir hangikjötsilm á Þorláksmessu
Hann rifjar upp aðdraganda kaupanna.
„Ég fór til pabba í kvöldkaffi og sagði honum frá hugmyndinni. Hann varð yfir sig glaður og sagði að hann hefði haft okkur í huga. Síðan fór ég til Guðna og við náðum saman á Þorláksmessu, þar sem kaupin voru handsöluð yfir hangikjötsilm í eldhúsinu hjá þeim hjónum.“
Móttökur starfsfólks hafa verið jákvæðar að sögn Hjalta.
„Við héldum fund með starfsfólkinu í febrúar og þau tóku tíðindunum mjög vel. Ég þekki marga þeirra vel og hef oft kíkt í morgunkaffi þegar ég var í fríi af sjónum. Hér er góður starfsandi og öflug blanda af ungum starfsmönnum og reynslumiklum fagmönnum.“
Hann segir að stuðningur sé þegar farinn að skila sér, þótt samtöl við viðskiptavini séu enn á byrjunarstigi.
„Enn sem komið er hef ég aðeins rætt við einn viðskiptavin, Ramma, síðar Ísfélag sem er fyrrverandi vinnuveitandi minn og þaðan finn ég mikinn stuðning.“
Aðspurð um framtíðarsýn fyrirtækisins segir Hjalti að megináherslan verði á stöðugleika og áframhaldandi uppbyggingu.
„Fyrirtækið er í mjög góðum rekstri og orðsporið sterkt. Við ætlum að halda áfram á sömu braut með sama öfluga mannskapnum. Það verða vissulega einhverjar breytingar með nýjum eigendum, en stefnan verður áfram sú sama.“

Aðstaða JE Vélaverkstæðis á Siglufirði er öflug, með bátaskýli og gámalyftara sem ræður við allt að 36 tonna báta.
Stefnan sett á áframhaldandi uppbyggingu
Hann útilokar ekki frekari fjárfestingar.
„Verkstæðið er vel búið og aðstaðan góð, en það þarf stöðugt að fjárfesta í búnaði til að halda samkeppnishæfni. Við ætlum okkur að gera vel og gera enn betur.“
Að lokum segja þau hjónin að þau hlakki til að takast á við verkefnið.
„Við erum gríðarlega spennt að hitta viðskiptavini, bæði gamla og nýja, og ætlum að halda áfram að bjóða þá gæðaþjónustu og góð verð sem JE Vélaverkstæði hefur verið þekkt fyrir,“
segja þau.
Fréttamaður Trölla kíkti til þeirra hjóna í gær hjá JE Vélaverkstæði, þar sem starfsmenn og eigendur voru á leið í kaffisamsæti í tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins og formlegra eigendaskipta, með glæsilegu kaffimeðlæti á boðstólum.

Glæsilegt kaffimeðlæti var á boðstólum þegar starfsmenn og eigendur komu saman í tilefni 25 ára afmælis JE Vélaverkstæðis og formlegra eigendaskipta.
Myndir: Smári / Trölli.is











