Tónlistarmennirnir Hreimur Örn Heimisson og Diljá Pétursdóttir hafa sent frá sér nýtt lag sem ber heitið „Svona var lífið“. Lagið er komið í spilun á FM Trölla.

„Svona var lífið“ segir frá manni á níræðisaldri sem hefur misst eiginkonu sína og lifir rólegu lífi þegar hann leggst til hvílu eitt kvöldið. Morguninn eftir vaknar hann hins vegar fimmtíu árum yngri, og allt í kringum hann er eins og það var þá. Hann áttar sig á að hann fær líklega aðeins þennan eina dag — og reynir að njóta hans til fulls, með nýrri sýn á það sem áður þótti sjálfsagt en er í raun dýrmætt.

Lagið er hlýtt og hugljúft, með sterkan undirtón um tímann, minningar og gildi augnabliksins.

Upplýsingar:

  • Flytjendur: Hreimur & Diljá Pétursdóttir
  • Hljóðfæri, forritun og hljóðblöndun: Vignir Snær Vigfússon
  • Útsetning: Vignir Snær Vigfússon, Jón Guðfinnsson & Hreimur Örn Heimisson
  • Mastering: Birgir Tryggvason

„Svona var lífið“ er áhrifarík áminning um að njóta lífsins á meðan tíminn gefst — og að það sem virðist hversdagslegt getur reynst það dýrmætasta sem við eigum.