Íbúafundur í Tjarnarborg vegna fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar

Íbúafundur vegna fjárhagsáætlunar 2026 verður haldinn í Tjarnarborg þriðjudaginn 9. desember n.k. kl 17:00. Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að bæjarstjóri kynnir helstu atriði fjárhagsáætlunar 2026 og fyrirhugaðar framkvæmdir. Í kjölfarið gefst fundargestum kostur á að taka þátt í umræðum og leggja fram fyrirspurnir. Share via: 12 Shares Facebook 11 Twitter 0 More