Fjölmargir hafa leitað til Neytendasamtakanna vegna uppgjörs á smálánum en líkt og samtökin greindu frá í síðasta mánuði, sjá hér, keypti BPO kröfur af smálánafyrirtækinu Ecommerce2020 og hefur hafið innheimtu á þeim.

Sumir eru í þeim sporum að hafa ofgreitt af fyrri lánum (lán sem tekin voru fyrir maí 2019) sem brutu gegn lögum um neytendalán og gætu því átt rétt á skuldajöfnun. BPO sem keypti eingöngu útistandandi kröfur hefur ekki upplýsingar um greiðslur af fyrri lánum. Sumir hafa á einhverjum tímapunkti fengið skuldayfirlit (eða debtor yfirlit) í hendur frá Almennri innheimtu ehf. sem sá um innheimtu smálána undanfarin ár. Á yfirlitinu sést hvenær lán voru tekin, hvort lánin hafi verið ólögleg og hvernig greiðslum hefur verið háttað. Þar sem BPO hefur ekki þessar upplýsingar undir höndum bendum við lántakendum á að reyna að afla allra gagna um lánasögu og koma þeim áleiðis til BPO til yfirferðar og endurútreiknings.

Í lögum um persónuvernd er mælt fyrir um að einstaklingar eiga rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar er verið að vinna með um sig. Ástæðan er einföld; ef þú veist ekki hvaða upplýsingar er verið að vinna með um þig þá getur þú ekki gætt réttinda þinna.

Þessi réttur byggir á þremur meginreglum:

  1. Aðgangsréttur einstaklings, þ.e. réttur einstaklings til að fá upplýsingar um afrit af öllum persónuupplýsingum sem viðkomandi fyrirtæki vinnur með – eða hefur unnið með.
  2. Upplýsingaréttur einstaklings, þ.e. réttur til að fá að vita hvort verið sé að vinna upplýsingar um einstakling.
  3. Fræðsluskylda fyrirtækja, þ.e. fyrirtækjum ber skylda til að upplýsa um þá vinnslu sem viðkomandi fyrirtæki er að vinna.

Lántakendur eru því hvattir til að senda tölvupóst á netfangið gisli@almenn.is og óska eftir að fá afhent þau gögn sem um ræðir. Gott er að setja almenn@almenn.is, bpo@bpo.is og smalan@ns.is í cc.

Pósturinn gæti hljóðað svo:

Með vísan til ákvæða laga um persónuvernd o.fl. nr. 90/2018 óska ég eftir að fá aðgang að öllum þeim persónuupplýsingum sem unnið hefur verið með hjá Almennri innheimtu ehf.

Sérstaklega er óskað eftir aðgangi að öllum gögnum og aðgangi að allri vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við lántökur mínar hjá E-content ehf. og Ecommerce2020 og greiðslu afborgana og uppgreiðslu lána.

Vinsamlega staðfestið móttöku á þessum pósti.

Nafn XXX

Kennitala XXX

Skoða á vef Neytandasamtakanna