Val á íþróttamanni ársins 2019 í Fjallabyggð fór fram í gær laugardaginn 28. desember í Tjarnarborg.

Grétar Áki Bergsson knattspyrnumaður var valinn íþróttamaður ársins 2019 í Fjallabyggð.

Hátíðin er samstarfsverkefni UÍF og Kiwanisklúbbsins Skjaldar.

Á hátíðinni var íþróttafólk verðlaunað fyrir árangur sinn á árinu 2019.  Tilnefnt var í flokknum 19 ára og eldri, ungur og efnilegur 13-18 ára og ung og efnileg 13-18 ára.

Glæsilegur hópur íþróttamanna í Fjallabyggð


Blak: ung og efnileg – Anna Brynja Agnarsdóttir
ungur og efnilegur – Patrick Gabriel Bors
Blakmaður ársins – Ólafur Björnsson

Badminton: ung og efnileg – Dómhildur Ýr Gray
ungur og efnilegur – Hörður Ingi Kristjánsson

Knattspyrna: ung og efnileg – Embla Þóra Þorvaldsdóttir
ungur og efnilegur – Þorsteinn Þorvaldsson
Knattspyrnumaður ársins – Grétar Áki Bergsson

Hestaíþróttir: ung og efnileg – Marlís Jóna Karlsdóttir
ungur og efnilegur – Hörður Ingi Kristjánsson

Golf: ung og efnileg – Sara Sigurbjörnsdóttir
ungur og efnilegur – Einar Ingi Óskarsson
Kylfingur ársins – Sigurbjörn Þorgeirsson

Skíði: ung og efnileg – Amalía Þórarinsdóttir
ungur og efnilegur – Andri Snær Elefsen

Kraftlyftingar: Kraftlyftingamaður ársins – Hilmar Símonarson

Skotíþróttir: Skotmaður ársins – Rögnvaldur Jónsson

Boccia: Bocciamaður ársins – Sigurjón Sigtryggsson

Íþróttaviðurkenning 2019: Er veitt til íþróttamanns sem hefur náð frábærum árangri í sinni íþróttagrein fyrir íþróttafélag utan Fjallabyggðar. Í ár hlýtur þessa viðurkenningu Anna Brynja Agnarsdóttir fyrir frábæran árangur í knattspyrnu á árinu 2019.

Heiðursviðurkenning 2019: Er veitt fyrir óeigingjarnt framlag að íþróttamálum í Fjallabyggð. Í ár hlýtur þessa viðurkenningu Björn Þór Ólafsson.