Laugardaginn 28. des sl. var Dagbjört Dögg Karlsdóttir frá Reykjaskóla í Hrútafirði valin íþróttamaður USVH 2019.

Dagbjört Dögg Karlsdóttir var kjörin Íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2019. Kjörinu var lýst á Staðarskálamótinu í körfubolta sem haldið var í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Dagbjört Dögg spilar körfubolta með úrvalsdeildarliði Vals og var valin besti varnarmaður Vals á tímabilinu. Sagt er frá þessu á vef USVH.

Á þessu ári varð Dagbjört Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari. Dagbjört er í 6.sæti yfir stigahæstu Íslendingana í úrvalsdeild kvenna og skilar að meðaltali 11,22 stigum í leik. Hún hefur nokkrum sinnum verið valin í lið umferðarinnar í Dominos deildinni. Dagbjört var fyrirliði U20 landsliðs kvenna og var hún framlags- og stigahæst í liðinu á Evrópumótinu í Kósovó og var valin í lokahóp A landsliðsins kvenna núna í haust.

Í öðru sæti varð Jóhann B. Magnússon knapi úr Hestamannafélaginu Þyt. Jóhann varð í 1. sæti í 100m skeiði á Reykjavíkurmeistaramótinu og 3. sæti í 100m skeiði á Íslandsmótinu. Hann varð alls átta sinnum í 1. sæti í skeiði og var 34 sinnum í verðlaunasæti á árinu. Jóhann er í 2. sæti á WR heimslistanum í 100 m skeiði með meðaltalstímann 7,39 og var tilnefndur sem skeið knapi ársins af Landsambandi hestamannafélaga sem og knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Þyt.

Í þriðja sæti varð Helga Una Björnsdóttir knapi úr Hestamannafélaginu Þyt. Helga er íslandsmeistari í T2 slaktaumatölti og varð Reykjavíkurmeistari í sömu grein. Helga var valin í landsliðhóp Íslands sem tók þátt á heimsmeistaramótinu í Berlín.

Aðsent.