Félag Kraftamanna hefur óskað eftir þátttöku Fjallabyggðar í aflraunakeppninni Víkingnum 2026, sem áætlað er að fari fram í fjórum sveitarfélögum á árinu. Í erindinu er farið fram á að sveitarfélagið leggi til gistingu og fullt fæði fyrir þátttakendur auk fjárstyrks að upphæð 250 þúsund krónur.
Erindið var tekið fyrir á 910. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar. Bæjarráð fól bæjarstjóra að svara erindinu og lýsa yfir áhuga sveitarfélagsins á að aflraunakeppnin Víkingurinn 2026 fari fram í Fjallabyggð.
Félag Kraftamanna er íslenskt félag sem starfar á vettvangi aflraunaíþrótta og stendur að eða tekur þátt í skipulagningu sterkra manna keppna. Í slíkum keppnum reyna þátttakendur með sér í ýmsum líkamlegum þrek- og styrktarþrautum, meðal annars með því að lyfta þungum hlutum, bera byrðar eða draga farartæki.
Eitt þeirra verkefna sem félagið hefur komið að er aflraunakeppnin Víkingurinn, sem haldin hefur verið víða um land. Keppnin fer fram í nokkrum greinum á hverjum stað og er markmið hennar meðal annars að kynna aflraunaíþróttir fyrir almenningi og efla viðburðahald í sveitarfélögum víðs vegar um landið.
Mynd: af facebooksíðu Kraftamenn.is





