Kveðjuleikur Hákonar Leós endaði með stórsigri - Sjáðu leikinn hér

Markaskorarar Knattspyrnufélags Fjallabyggðar eftir sigurinn á Glamsbjerg í Danmörku.

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar er um þessar mundir í Vejen í Danmörku þar sem liðið er í æfingaferð. Í gær lék liðið æfingaleik gegn Glamsbjerg og hafði öruggan sigur, 4–1.

Leikurinn var jafnframt sá síðasti hjá Hákoni Leó Hilmarssyni með liðinu að þessu sinni, en hann kom sérstaklega frá Svíþjóð til að taka þátt í ferðinni. Hákon, sem margir þekkja bæði innan vallar sem utan, kvaddi því félagið með sigri.

Kveðjuleikur Hákonar Leós endaði með stórsigri - Sjáðu leikinn hér

Hákon Leó Hilmarsson, sem kom sérstaklega frá Svíþjóð, lék sinn síðasta leik fyrir KF í sigrinum á Glamsbjerg.

Kveðjuleikur Hákonar Leós endaði með stórsigri - Sjáðu leikinn hér

Caio og Thomas léku sinn fyrsta leik fyrir KF í æfingaleiknum gegn Glamsbjerg í Danmörku.

Vídeó

Hægt er að horfa á æfingaleikinn í meðfylgjandi myndbandi hér að neðan.

Myndir: Facebook / Knattspyrnufélag Fjallabyggðar