Kvenfélagskonur fjölmenntu til Passíusálmalesturs í Ólafsfjarðarkirkju í gær, á Föstudaginn langa, þar sem kyrrð og helgiblær einkenndu stundina. Vel var mætt og þátttaka góð, enda hefð fyrir þessum viðburði sem markar mikilvægan þátt í páskahaldi bæjarbúa.

Á morgun, páskadag, verður sameiginleg hátíðarmessa Ólafsfjarðar- og Siglufjarðarprestakalla haldin í Siglufjarðarkirkju klukkan 14:00. Sr. Sigurður Ægisson þjónar fyrir altari og sr. Stefanía Steinsdóttir prédikar. Kirkjukór Fjallabyggðar syngur við messuna og organisti verður Ave Kara Sillaots.

Að messu lokinni verður hátíðarkaffi í safnaðarheimilinu í boði Systafélags Siglufjarðarkirkju, þar sem gestum gefst tækifæri til að setjast niður og njóta samveru í tilefni hátíðarinnar.

Mynd: Facebook / Ólafsfjarðarkirkja