Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, kom á 158. fund fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar og kynnti fyrirhugaðar breytingar á opnunartíma líkamsræktar á Siglufirði næsta sumar vegna viðhaldsframkvæmda í íþróttahúsinu.
Fram kom að loka þyrfti sundlauginni á framkvæmdatímanum og lagði Skarphéðinn til að opnunartími líkamsræktarinnar yrði breyttur sumarið 2026. Með hliðsjón af reynslu síðasta sumars taldi hann ekki þörf á sambærilegri opnun og verið hefur, lagði hann til að líkamsræktin yrði lokuð um helgar.
Nefndarmenn tóku undir tillögu Skarphéðins um helgarlokun líkamsræktarinnar á Siglufirði sumarið 2026.
Mynd: Vilmundur Ægir Eðvarðsson




