KF tók í dag á móti Ægi frá Þorlákshöfn á rennandi blautum Ólafsfjarðarvelli. Leiknum seinkaði um 15 mínútur vegna þess að Ægismenn mættu seint til Ólafsfjarðar og í sameiningu var honum seinkað aðeins. Leikurinn byrjaði þannig að Ægismenn reyndu eins og þeir gátu að sparka boltanum inn fyrir vörnina og okkar menn gerðu vel og skölluðu alla bolta í burtu. KF fékk þó nokkur færi í fyrri hálfleik án þess að skora.

Seinni hálfleikur var mjög viðburðaríkur og á 62. mínútu fær leikmaður Ægis seinna gula spjaldið og þar með rautt. Á 69. mínútu á Hákon fyrirgjöf á Björn Andra sem lætur verja hjá sér og Kristófer nær frákasti og markmaðurinn gerir vel aftur og ver og þá kemur Ljubamir Delic og Þrumar boltanum inn í markið og kemur KF í 1-0.

Ægismenn náðu aðeins að setja á KF en vörn KF sem og allir í KF áttu frábæran leik og náði alltaf að vinna einvígi í teignum. Á 81. mínútu fær svo annar leikmaður Ægis rautt spjald eftir að hafa stígið ofan á Tómas Veigar, ljót framkoma og BEINT RAUTT! Eftir það tók KF öll völd í leiknum og eftir gott spil fær Grétar Áki sendingu inn fyrir vörn Ægis og klárar vel fram hjá markmanni Ægis og kemur KF í 2-0.

2. sigur KF orðin staðreynd og lyfta þeir sér upp í áttunda sæti og eru komnir með 6 stig.
næsti leikur KF er útileikur gegn KH á Origo vellinum á Hlíðarenda 23. jún.

 

Mynd/Guðný Ágústsdóttir
Frétt fengin af vef. Knattspyrnufélags Fjallabyggðar