Myndasafn: Fallegt um að litast á Siglufirði þrátt fyrir snjóþungann

Það hefur snjóað talsvert í Fjallabyggð undanfarna daga og er Siglufjörður orðinn snævi þakinn og svipmikill. Hvítagullið nýtur sín vel og víða má sjá sannkallað vetrarríki.

Snjóþunginn hefur þó ekki eingöngu jákvæð áhrif. Á Skíðasvæðinu í Skarðsdal hefur ástandið reynst krefjandi og unnið er af krafti að því að koma svæðinu í rétt horf fyrir páskana.

Sjá nánar: Stemmingskallinn sýnir frá snjóþunganum í Skarðsdal

Meðfylgjandi myndir tók Vilmundur Ægir Eðvarðsson í dag og gefa þær glögga mynd af aðstæðum og þeirri fegurð sem snjórinn hefur fært bænum.