Hátíðin Páskar í Fjallabyggð bauð upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem íbúar og gestir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.

Boðið var upp á viðburði af ýmsum toga, allt frá menningu og íþróttum til fjölbreyttrar afþreyingar fyrir alla fjölskylduna, og var þátttaka víða góð.

Trolli.is hefur tekið saman það helsta frá hátíðinni og birtir hér myndir frá ýmsum viðburðum síðustu daga, sem gefa góða innsýn í stemninguna sem ríkti í Fjallabyggð um páskana.

Eduard og Tinna sigruðu í páskaparamóti Blakfélags Fjallabyggðar

Eduard og Tinna sigruðu í páskaparamóti Blakfélags Fjallabyggðar

Páskaparamót Blakfélags Fjallabyggðar fór fram föstudaginn langa og var vel sótt. Alls tóku 18 pör þátt og ríkti mikil stemmning í keppninni þar sem leikgleði og góð samkeppni fóru saman. Nánari upplýsingar um mótið má finna hérMyndir: Facebook / Blakfélag Fjallabyggðar.

Nóg um að vera hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar

Nóg um að vera hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar

Nóg var um að vera hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar um páskana þar sem frábært færi og nægur snjór var í Tindaöxl. Einnig var góð aðstaða til skíðaiðkunar í Bárubraut og meðfram Ólafsfjarðarvatni þar sem margir lögðu leið sína. Myndir: Skíðafélag Ólafsfjarðar.

Viðburðir og opið hús hjá Síldarkaffi og Síldarminjasafninu

Síldarkaffi og Síldarminjasafn Íslands lögðu sitt af mörkum til hátíðarinnar með áhugaverðum viðburðum og opnu húsi, þar sem meðal annars var boðið upp á lifandi tónlistarbingó með Landabandinu á Síldarkaffi. Myndir: Facebook / Síldarkaffi / Síldarminjasafn Íslands.

Vel heppnuð páskahelgi hjá Skíðaborg

Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg naut góðra stunda í fjallinu um páskana þar sem veitingasalan, sem rekin er í sjálfboðaliðastarfi, gekk vel og var vel sótt af gestum.

Félagið þakkar viðskiptavinum fyrir stuðninginn og styrktaraðilum, þar á meðal Aðalbakaríi, Kjörbúðinni, Segli 67 og L7-rekstraraðila skíðasvæðisins, fyrir sitt framlag til vel heppnaðrar páskahelgi.  Myndir: Facebook / Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg.

Pálshús vakti forvitni gesta

Í Pálshúsi í Ólafsfirði, sem var opið laugardaginn 4. apríl frá kl. 13 til 17, vakti þessi dularfulla uppákoma í kjallaranum athygli gesta.

Helvítis kokkurinn með pizza pop-up á Kaffi Rauðku

Helvítis kokkurinn með pizza pop-up á Kaffi Rauðku

F.v. Ívar Örn Hansen, Helvítis kokkurinn, og Þórey Hafliðadóttir. Mikil stemning myndaðist á Kaffi Rauðku þegar gestir streymdu að til að smakka á pizzunum og var viðburðurinn greinilega vel heppnaður.

Stemningin var góð á Kaffi Rauðku á föstudaginn langa þegar gestir komu saman til að smakka á pizzunum og viðburðurinn þótti heppnast vel. Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér. Mynd: Veronika Guls.

Páskaeggjaleit vakti lukku

Páskaeggjaleit vakti lukku

TBS, Tennis- og badmintonfélag Siglufjarðar, stóð fyrir páskaeggjaleit í Skógræktinni á Siglufirði laugardaginn 4. apríl. Viðburðurinn heppnaðist vel og mætti mikill fjöldi þátttakenda sem nutu skemmtilegrar stundar saman.  Myndir: Facebook / TBS, Tennis- og badmintonfélag Siglufjarðar

Fleiri myndir hér.

Mikil páskastemning í Skarðsdal

Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði bauð upp á páskaeggjaleit og lifandi tónlist, opið var í allar lyftur og mikill fjöldi skíðafólks heimsótti svæðið yfir páskana.  Myndir: Facebook / Skíðasvæðið Skarðsdal Siglufirði

Landabandið hélt uppi fjörinu – Myndbönd

Landabandið hélt uppi fjörinu

Síldarkaffi var þéttsetið föstudaginn 3. apríl þegar siglfirska og hressa Landabandið stýrði lifandi tónlistarbingói. Mynd og myndbönd: Síldarkaffi.

Hér má sjá myndbönd frá viðburðinum:

Stiklað á stóru

Þetta er aðeins lítið brot af öllu því sem var í boði á hátíðinni.

Páskarnir í Fjallabyggð: Fjölbreytt dagskrá og líflegt bæjarlíf fram undan