Breyttu fyrirkomulagi um afhendingu lyfja, sem taka átti að gildi í dag, þriðjudaginn 10. mars 2020, hefur verið frestað til 30. mars næstkomandi.

Í tilkynningu Lyfjastofnunar um frestunina segir að í ljósi örrar fjölgunar COVID-19 smita sé mikilvægt að hægja á eða stöðva ferla sem geti haft aukna smithættu í för með sér.

Skriflegt umboð sé þess eðlis að það auki hættu á að veirur berist manna á milli. Því hafi Lyfjastofnun ákveðið að fresta kröfu um skriflegt umboð til 30. mars nk.

Sjá nánar á vef Lyfjastofnunar, lyfjastofnun.is