Páskastemning og keppnisandi voru allsráðandi þegar Pílufélag Fjallabyggðar hélt sitt árlega páskamót í gær. Mótið þótti takast afar vel og var þátttaka góð, en alls mættu 22 keppendur til leiks.
Keppnin var spennandi frá upphafi til enda og var hart barist um efstu sætin í öllum flokkum.
Í forsetabikarnum var sérstök stemning þegar feðgarnir Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson og Óli Björn Þorvaldsson mættust í úrslitum. Þar hafði sonurinn betur í hörkuspennandi leik og sigraði 3–1.
Í A-úrslitum áttust við Halldór Ingvar Guðmundsson og Mikael Ingi Jónsson. Halldór Ingvar sýndi þar sterka frammistöðu og stóð uppi sem sigurvegari, með 3–1 sigri.
Aukaverðlaun voru einnig veitt fyrir góðan árangur. Ægir Eyfjörð Gunnþórsson hlaut verðlaun fyrir flest 180, en Björn Helgi Ingimarsson fékk verðlaun fyrir hæsta útskot.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að mótið hafi verið afar vel heppnað og stemningin góð allan daginn. Þakkað er öllum keppendum fyrir þátttökuna, auk þess sem sérstakar þakkir eru færðar Kjörbúðinni á Ólafsfirði og Hvanndalir Lodge fyrir glæsileg verðlaun.
Pílufélag Fjallabyggðar segir jafnframt að hlakkað sé til næsta móts.
Myndir: Facebook / Pílufélag Fjallabyggðar








