Í ljósi nýrra reglna Covid 19, til að virða 2m regluna, þá er ljóst að takmarka þarf aðgang að opnu húsi Vildarvina og Siglfirðingafélagsins í dag við 30 manns sem vera á í Síldarminjasafni Íslands.

Ef fleiri en 30 mæta mun verða boðið upp á aðra kynningu kl 18:00 sem fjöldi mun einnig takmarkast við 30 manns.

Því miður þarf að grípa til þessara aðgerða þar sem ekki er í önnur hús að leita með svo skömmum fyrirvara.

Móttakan hefst um kl 17:00 og er dagskráin eftirfarandi:

  1. Kynning á innihaldi gjafar Vildarvina og Siglfirðingafélagsins
  2. Andlit bæjarins – myndbrot úr smiðju Tómasar Hallgrímssonar
  3. Afhending uppfærðrar gjafir til Síldarminjasafnsins og fulltrúa Fjallabyggðar
  4. Afhending minnislykla til viðmælenda í þáttunum sem þakklætisvottur fyrir aðstoðina
  5. Afhending á gjöf Vildarvina til SSS í tilefni 100 ára afmælis 
  6. Afmælisgjöf til Golfklúbbs Siglufjarðar í tilefni 50 ára afmælis

Allir sem áhuga hafa á málefninu eru hvattir til að koma á Síldarminjasafnið og vera viðstaddir afhendinguna.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að eignast þættina er bent á að senda tölvupóst á formann SSS Jón Garðar Steingrímsson – jongardar79@gmail.com

Sjá einnig frétt: “SIGLUFJÖRÐUR – SAGA BÆJAR” NÚ TIL SÖLU Á USB LYKLI