Opinn Hátíðarfundur AA-samtakanna í Fjallabyggð verður haldinn í Safnaðarheimili Siglufjarðarkirkju föstudaginn langa 3. apríl kl. 16:00
Veitingar verða að hætti hússins og eru AA félagar hvattir til að taka með sér sér fjölskyldu og vini.
Stofnfundur AA-samtakanna á Íslandi var haldinn föstudaginn 16. apríl 1954. Þeir sem boðuðu til fundarins höfðu ekki áttað sig á því að föstudaginn sem þeir boðuðu til fundarins, bar upp á föstudaginn langa. En af þessari tilviljun miðast afmæli AA-samtakanna á Íslandi því við föstudaginn langa ár hvert.
Stofnfélagar voru 14, en í vetrarbyrjun stofnárið 1954 voru félagar orðnir 80. Lengi vel var haldinn einn, en síðar tveir fastir AA-fundir í viku hverri. Sjúkum var hjúkrað á ýmsum stöðum, fyrst kom Bláa bandið 1955 og í framhaldinu Flókadeild Kleppsspítalans. AA meðlimir gengu ötulega fram við að hjálpa hvor öðrum þegar svo bar undir.
Á áttunda áratugnum varð aftur mikill vöxtur í AA-samtökunum á Íslandi er íslendingar fóru að leita sér hjálpar við alkóhólisma hjá Freeport sjúkrahúsinu í Bandaríkjunum. Þá hóf starfsemi sína Vífilstaðadeild Landspítala Íslands 1976. Margir vesturfarar og fleiri stofnuðu AA deildir þegar heim kom.
Samtök áhugafólks um áfengisvandann, SÁÁ, voru stofnuð 1977, en þau samtök komu upp sjúkrahúsi og meðferðarstöðvum sem voru sérhæfðar í meðferð alkóhólisma. Samskipti milli AA og SÁÁ sem og annarra meðferðarstofnanna hafa verið farsæl frá fyrstu tíð.
AA-samtökin á Íslandi hafa haldið áfram að eflast og stækka fram á þennan dag. Nú eru haldnir rétt um 300 íslenskir AA-fundir á viku hverri eða u.þ.b. 16.000 þúsund fundir á ári. Má nærri geta að margir hafa öðlast nýtt og betra líf fyrir tilstilli þeirra.
Heimild: AA-samtökin á Íslandi





