Dægurlagamessa verður haldin í Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 8. mars klukkan 17. Um er að ræða sameiginlega guðsþjónustu prestakallanna í Fjallabyggð þar sem dægurlög fá að njóta sín í helgihaldinu.
Hugleiðingu flytur Kristín Tómasdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur. Kirkjukór Fjallabyggðar leiðir sönginn og koma einnig fram einsöngvararnir Sunna Eir Haraldsdóttir og Þorsteinn Bjarnason. Organisti er Ave Kara Sillaots.
Prestarnir sr. Sigurður Ægisson og sr. Stefanía Steinsdóttir leiða messuna.
Dægurlagamessur hafa notið vinsælda víða um land þar sem tónlist úr samtímanum er fléttuð inn í hefðbundið helgihald. Við slíkar aðstæður verður oft til rólegt og notalegt andrúmsloft þar sem tónlist og íhugun fléttast saman.
Allir eru velkomnir til messunnar í Siglufjarðarkirkju.
Mynd: Smári





