Húnaþing vestra greiðir út styrki til íþrótta- og tómstundaiðkunar barna frá tekjulágum heimilum í Húnaþingi vestra. Styrkurinn, sem kemur frá félagsmálaráðuneytinu er að hámarki 45.000 kr fyrir hvert barn og er sótt um styrkinn á vef Ísland.is.  Foreldrar eða forsjáraðilar þurfa að skrá sig inn á Ísland.is með rafrænum skilríkjum og þar kemur í ljós hvort heimilið uppfyllir skilyrði fyrir styrk. 

Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.

Umsóknir skulu berast fyrir 1.mars 2021 og skal umsóknum skilað á skrifstofu Húnaþings vestra, með þeim skulu fylgja gögn um kostnað umsækjanda við íþrótta- og tómstundastarf barnsins á árinu 2020-2021

Á barnið þitt rétt á styrk?

Á Ísland.is má sjá hvort barn á rétt á þessum styrk, þar sést hvort heimilið fellur undir viðmið um tekjur á tímabilinu mars-júlí 2020 eins og fram kemur hér ofar. Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á Ísland.is

Ef svarið er jákvætt opnast fyrir möguleika á að sækja um styrkinn, umsókninni þarf að fylgja reikningur/staðfesting frá íþrótta- eða tómstundafélagi um að barn sé að sækja tómstundir þangað. 

Allar frekari upplýsingar má finna á vef Ísland.is og einnig á heimasíðu Húnaþings vestra.  

Umsóknareyðublað má finna HÉR

Frétt um styrkinn hjá Stjórnarráði Íslands.

Skoða á vef Húnaþings vestra