Leikfélag Fjallabyggðar birti nýlega skemmtilegt myndband á Facebook þar sem litið er bak við tjöldin á sýningunni Vífið í lúkunum. Myndbandið hefur fengið góð viðbrögð og sýnir á einfaldan og skemmtilegan hátt hvernig starfið fer fram á bak við sviðið.

Í myndbandinu má sjá leikara og aðstandendur við undirbúning og störf sín, þar sem létt stemning og góður andi eru áberandi.

Næstu sýningar á Vífinu í lúkunum verða 7. apríl og 9. apríl og hefjast þær klukkan 20:00.

Hægt er að panta miða í síma 849-5834 hjá Vibekku og 865-0967 hjá Kamillu.

Myndband

Samsett mynd: skjáskot úr myndbandi