Pílufélag Fjallabyggðar heldur páskamót þann 6. apríl næstkomandi þar sem bæði áhugafólk og keppnisfólk fær tækifæri til að spreyta sig.

Mótið verður haldið í húsnæði félagsins á efstu hæð hjá Ísfelli í Ólafsfirði. Opnað verður klukkan 15:00 og hefst keppni stundvíslega klukkan 16:00. Öllum er frjálst að skrá sig til leiks en fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Aðeins 24 keppendur komast að og því ljóst að áhugi gæti verið mikill miðað við fyrri viðburði félagsins. Skráningargjald er 2.500 krónur.

Pílufélag Fjallabyggðar hefur á undanförnum misserum byggt upp öflugt starf og haldið fjölbreytta viðburði sem laða að bæði nýliða og reyndari spilara. Páskamótið er liður í þeirri uppbyggingu og tilvalið tækifæri fyrir áhugasama að kynnast íþróttinni.

Skráning fer fram hér og einnig er hægt að skoða lista yfir skráða keppendur hér.

Mynd: Facebook / Pílufélag Fjallabyggðar