Siglufjarðarvegi var lokað fyrir skömmu um Almenninga vegna snjóflóðs, frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum, mjög hvasst er á Tröllaskaga.
Sjá nánar um færð á umferðin.is
Á fjallvegum á norðvesturhelmingi landsins er hvasst og éljagangur þar sem getur verið blint fram á kvöld. Eins má búast við snjókomu um tíma og skafrenningi á Öxnadalsheiði, einnig fram undir kvöld. Á láglendi getur færð spillst þar sem hiti getur verið undir frostmarki. Lægir markvert og dregur úr ofankomu eftir kl 20 í kvöld.





