Stórhríð yfir landinu og Siglufjarðarvegur á óvissustigi

Skjáskot af vef Veðurstofu Íslands klukkan 08:00 í morgun sem sýnir viðvaranir um land allt

Stórhríð gengur nú yfir landið og hefur Veðurstofa Íslands gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir fyrir allt landið.

Veðuraðstæður eru víða erfiðar og búast má við hvössum vindum, mikilli ofankomu og skafrenningi sem getur haft áhrif á samgöngur og daglegt líf fólks.

Stórhríð yfir landinu og Siglufjarðarvegur á óvissustigi

Skjáskot af vef Vegagerðarinnar klukkan 08:40 og 08:45 í morgun sem sýnir aðstæður á Siglufjarðarvegi

Í tilkynningu frá Vegagerðin kemur fram að Siglufjarðarvegur verði á óvissustigi í dag, mánudaginn 6. apríl, á milli klukkan 16:00 og 23:00. Það þýðir að vegurinn getur lokast með skömmum fyrirvara ef aðstæður versna.