Framboðsfrestur vegna komandi sveitarstjórnarkosninga í Fjallabyggð rennur út föstudaginn 10. apríl næstkomandi klukkan 12:00. Kosningarnar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu kemur fram að yfirkjörstjórn Fjallabyggðar taki á móti framboðum í ráðhúsi sveitarfélagsins sama dag, 10. apríl, á milli klukkan 11:00 og 12:00. Þá er einnig unnt að skila gögnum rafrænt með því að senda þau á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is.
Framboðslistar þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. Með hverjum lista skal fylgja tilkynning um framboð þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtaka og listabókstaf þeirra samkvæmt skrá dómsmálaráðuneytisins. Ef samtök hafa ekki listabókstaf þarf að óska eftir honum hjá yfirkjörstjórn sveitarfélagsins. Þá skulu fylgja upplýsingar um tvo umboðsmenn listans ásamt samþykki þeirra, auk framboðslista með undirrituðu samþykki frambjóðenda.
Einnig þarf að leggja fram meðmæli með framboðinu, að lágmarki 20 og að hámarki 40 meðmælendur. Hægt er að safna meðmælum rafrænt á Ísland.is en jafnframt er heimilt að safna þeim á pappír. Mælst er til þess að framboð setji meðmælin inn í rafrænt meðmælakerfi, en frumritum þarf þó að skila til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.
Mynd: Smári / Trolli.is





