Kristín og Gunnar Smári

Þátturinn Tíu Dropar verður á dagskrá FM Trölla í dag kl 13.00 – 15.00

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Fáum góðan gest í heimsókn, Magnús G. Ólafsson skólastjóra Tónlistaskólans á Tröllaskaga sem hefur frá ýmsu að segja.

Ætlum einnig að glugga í íslensku eurovision lögin og ræða hvað okkur finnst um þau og fl. og fl.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla í dag kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta