Þátturinn Tíu dropar verður í beinni útsendingu á Þorláksmessukvöld frá kl. 20:00 – 22:00.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Þátturinn verður sendur út beint frá SR Bygg á Siglufirði þar sem dregið verður í hinum árlega jólaleik.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla sem að þessu sinni færist yfir á morgundaginn, Þorláksmessu. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is