Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Fjallabyggð hefur verið samþykktur á fundi fulltrúaráðs flokksins.
Í efsta sæti listans er Tómas Atli Einarsson, framkvæmdastjóri og í öðru sæti Kristín Ágústa Eiðsdóttir, kennaranemi og starfsmaður leikskóla. Guðrún Sif Guðbrandsdóttir fjármálastjóri er í þriðja sæti og Viktor Freyr Elísson sérfræðingur á fjármálasviði, í því fjórða.
Í fimmta sæti er Stefán Júlíusson, hótelráðgjafi og í sjötta sæti Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri.
Listann skipa alls 14 frambjóðendur. Þar má meðal annars finna einstaklinga með bakgrunn úr skólastarfi, sjómennsku og atvinnulífi.
Samþykkt listans markar upphaf undirbúnings flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Fjallabyggð 2026.






