Fjallabyggð vekur athygli á því að búast megi við tímabundinni truflun á vatnsveitu í Ólafsfirði miðvikudaginn 1. apríl.
Truflunin tengist vinnu við miðlunartank og er gert ráð fyrir að hún standi yfir á milli klukkan 09:00 og 09:30. Á þeim tíma gæti þrýstingur fallið eða vatn tímabundið farið af hjá hluta íbúa.
Íbúum er bent á að hafa það í huga við skipulag morgunsins á meðan framkvæmdum stendur.
Mynd: fjallabyggd.is





