Fjallabyggð kynnir áform um breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga. 

Markmið endurskoðunar er að búa betur um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbyggingarmöguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans.

Eldra skipulag byggði á því að steypustöð austast á tanganum yrði flutt í náinni framtíð. Vegna breyttra forsenda þarf endurskoðað skipulag að gera ráð fyrir áframhaldandi starfsemi steypustöðvar á svæðinu með viðeigandi skilmálum svo það falli sem best að aðliggjandi landnotkun.

Jafnframt er lögð áhersla á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist þannig að ólík starfsemi geti samræmst og styrkt heildarmynd og notagildi svæðisins. Breyting á aðalskipulagi og endurskoðun deiliskipulags Leirutanga verður auglýst samhliða.

Hægt er að senda inn umsagnir vegna breytinga á aðalskipulagi Fjallabyggðar og heildarendurskoðun deiliskipulags Leirutanga.