Umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga.

Heildarendurskoðun deiliskipulags Leirutanga
Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar – Leirutangi

Efni: Umsögn Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra, breyting á aðalskipulagi og deiliskipulagi 2020-2033 á Leirutanga í Siglufirði, Fjallabyggð. Málsnúmer 267/2026

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur móttekið erindi, er barst þann 5. mars 2026 þar sem óskað er eftir umsögn um lýsingu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Fjallabyggðar vegna Leirutanga á Siglufirði. Málsnúmer. 267/2026.

Í greinargerð kemur fram að markmið endurskoðunar er að búa betur um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbyggingarmöguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans. Eldra skipulag gerði ráð fyrir að steypustöð austast á Leirutanga yrði flutt í náinni framtíð.

Fram kemur að vegna breyttra forsenda sé nú gert ráð fyrir áframhaldandi starfsemi steypustöðvar á svæðinu með viðeigandi skilmálum svo það falli sem best að aðliggjandi landnotkun. Jafnframt er lögð áhersla á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist þannig að ólík starfsemi geti samræmst og styrkt heildarmynd og notagildi svæðisins.

Heilbrigðiseftirlitið hefur skoðað framlagðar teikningar og bendir á að staðsetning bensínstöðvar, steypustöðvar og tjaldsvæðis á sama svæði sé óheppileg þar sem hún sameinar iðnaðarstarfsemi og viðkvæma útivist. Slík nálgun getur aukið slysahættu,valdið mengun og hávaða og skert upplifun og öryggi gesta, auk þess að ganga gegn almennum skipulags- og heilbrigðissjónarmiðum.

Samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum nr. 123/2010 um skipulag, reglugerð um hollustuhætti nr 903/2024, reglugerð nr 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnir, reglugerð nr. 787/1999 um  loftgæði ber að koma í veg fyrir mengun, hávaða og slysahættu sem getur haft áhrif á almenning. Slík starfsemi á að vera aðskilin frá viðkvæmri landnotkun svo sem tjaldsvæðum.

Samnýting svæðis fyrir bensínstöð, steypustöð og tjaldsvæði samræmist ekki þessum meginreglum um heilnæmt umhverfi, öryggi og samrýmanlega landnotkun.

Að mati Heilbrigðiseftirlitsins er mikilvægt að endurskoða skipulag svæðisins með það að markmiði að aðskilja iðnaðarstarfsemi og viðkvæma útivist.

Virðingarfyllst
Sigríður Hjaltadóttir
Framkvæmdastjóri

Tengdar fréttir:

Mynd: Smári