Umsögn Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagstofnunar vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga.
Heildarendurskoðun deiliskipulags Leirutanga
Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar – Leirutangi
Efni: Lýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi og endurskoðun deiliskipulags vegna Leirutanga, Siglufirði
Fjallabyggð hefur, með erindi dags. 6. mars 2026, óskað umsagnar Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnunar (HMS) um lýsingu, dags. 28. janúar 2026, vegna breytingar á aðalskipulagi sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og tillögu að endurskoðun deiliskipulags sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Viðfangsefni fyrirhugaðrar skipulagstillögu er að marka stefnu um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbyggingarmöguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans.
Gert verður ráð fyrir að steypustöð, sem áður var víkjandi, verði áfram á svæðinu. Áhersla verður lögð á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist. Gert er ráð fyrir að svæðið stækki um 4 ha.
HMS hefur farið yfir framlögð gögn og bendir á eftirfarandi atriði til skoðunar fyrir mótun tillögu:
Stækkun svæðis
Gera þarf grein fyrir stærð og umfangi fyrirhugaðrar landfyllingar. Fjalla þarf um áhrif breytingarinar á umhverfið m.a. með samanburði af áhrifum annarra valkosta sem geta komið til álita fyrir stækkun landfyllingarinnar.
Athafnalóðir
Æskilegt er að setja fram viðmið um hvers konar starfsemi teljist til léttrar athafna- og hafnarstarfsemi.
Samráð
Vegna staðsetningar svæðisins í bænum minnir stofnunin sérstaklega á að mikilvægi þess að hafa gott samráð í gegnum allt skipulagsferlið við íbúa og aðra hagsmunaaðila búsetta innan og utan sveitarfélags.
Stafrænt aðalskipulag
Minnt er á að þegar aðalskipulagstillaga verður sett fram í Skipulagsgátt til athugunar fyrir auglýsingu
sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga þarf að skila inn aðalskipulagsgögnum á stafrænu formi auk hefðbundinna skipulagsgagna.
Stafrænt deiliskipulag
Minnt er að þegar nýtt deiliskipulag er lagt fram í Skipulagsgátt til athugunar eftir auglýsingu sbr. 42. gr. skipulagslaga þarf að skila inn deiliskipulagsgögnum á stafrænu formi auk hefðbundinna skipulagsgagna.
Umhverfismat framkvæmda og áætlana
Skoða þarf hvort fyrirhugaðar framkvæmdir vegna landfyllingar séu tilkynningaskyldar til ákvörðunar um matsskyldu sbr. tl. 10.18 eða 13.02 í 1. viðauka laganna. Ef framkvæmdirnar eru fyrirhugaðar á verndarsvæði á stærðarviðmið fyrir umfang töluliðina ekki við.
Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir





