Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hafa borist upplýsingar frá Veðurstofu Íslands um að vatnshæð aukist í Héraðsvötnum og vatn sé að nálgast þjóðveginn.

Krap og klaki er í ánni og spáð hlýindum í dag og úrkomu. Meðfylgjandi myndir voru teknar við bæina Minni- og Stóru-Akra.

Fólk á svæðinu er hvatt til að fylgjast vel með, þá sérstaklega bændur vegna búfjár sem gæti lent í sjálfheldu ef kemur til áframhaldandi vatnavaxta.

Mynd tekin við bæina Minni- og Stóru-Akra.

Myndir: af vefsíðu Skagafjarðar