Óvissustigi hefur verið lýst yfir í Ólafsfjarðarmúla vegna hættu á snjóflóðum.
Tilkynning þess efnis barst frá Vegagerðinni klukkan 09:30 í morgun, þriðjudag. Um er að ræða varúðarráðstöfun þar sem óvissa ríkir um hvort snjóflóð kunni að falla á svæðinu.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og fylgjast vel með upplýsingum frá Vegagerðinni á meðan ástandið varir. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar að svo stöddu.
Myndir: Skjáskot af vef Vegagerðarinnar frá því í morgun







