Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði er um þessar mundir bókstaflega á kafi í snjó, eins og sjá má í nýlegu myndbandi sem Birgir Egilsson, forstöðumaður svæðisins og betur þekktur sem „Stemmingskallinn“, hefur birt á YouTube.
Í myndbandinu, sem hann kallar „work vlog“ undir heitinu “Heavy snow work. Shoveling and snow groomer ride”, gefur að líta umfangsmikla vinnu við að halda svæðinu gangandi við krefjandi aðstæður. Þar sést meðal annars hvernig moka þarf gríðarlegt magn af snjó af húsum og svæði, auk þess sem snjótroðar voru nýttir til að vinna úr aðstæðum.
„Ég þurfti að fara upp á skíðasvæðið á Siglufirði og moka um tveimur metrum af snjó af veitingaskálanum, auk þess að nota bæði troðara og skóflur. Þá var ég jafnframt að leita leiða til að fjarlægja þungt snjófarg af þakinu,“
segir Birgir í myndbandinu.
Myndefnið sýnir vel hversu mikill snjór hefur safnast í Skarðsdal síðustu daga. Veitingaskálinn er nánast hulinn snjó og ljóst að aðstæður eru bæði krefjandi og tímafrekar fyrir starfsfólk svæðisins.
Sjón er sögu ríkari.
Mynd: Skjáskot úr myndbandi





