Bæjarráð Fjallabyggðar tók fyrir framtíðarnýtingu flugvallarsvæðisins á Siglufirði á fundi sínum þann 30. mars síðastliðinn, í kjölfar auglýsingar þar sem kallað var eftir hugmyndum um nýtingu fasteigna sveitarfélagsins á svæðinu.

Alls bárust þrjár grófar hugmyndir um mögulega uppbyggingu.

Fyrirtækið Viking Heliskiing lýsir yfir áhuga á að kaupa eignir Fjallabyggðar og þróa svæðið áfram sem lykilinnviði í ferðaþjónustu á Tröllaskaga og í Fjallabyggð, með áherslu á þyrluþjónustu tengda starfsemi sinni.

Þá hefur Georg Páll Kristinsson einnig lýst yfir áhuga á nýtingu svæðisins, þar sem hann sér fyrir sér rekstur með vistvænum brennsluofni.

Þriðja hugmyndin er almennari í sniðum og snýr að því að nýta svæðið fyrir fjölbreytta viðburði á borð við tónleika, listsýningar og annars konar samkomur.

Viking Heliskiing

Viking Heliskiing er með aðsetur við Golfskálann á Siglufirði þar sem þyrlur fyrirtækisins eru nýttar í ferðaþjónustu á Tröllaskaga.

Í niðurstöðu sinni samþykkti bæjarráð að ganga til viðræðna við Viking Heliskiing um mögulega framtíðaruppbyggingu á flugvallarsvæðinu og kaup á eignum sveitarfélagsins þar. Sú ákvörðun er sögð í samræmi við tillögur starfshóps frá árinu 2022 um framtíðarnýtingu svæðisins.

Með þessari ákvörðun er stigið fyrsta skrefið í átt að frekari þróun flugvallarsvæðisins á Siglufirði, þar sem áhersla virðist lögð á að styrkja innviði ferðaþjónustu á svæðinu.

Myndir: vikingheliskiing.com