Hollvinafélag HSN Fjallabyggð var formlega stofnað þann 24. febrúar síðastliðinn. Hugmyndin að stofnun félagsins hefur verið til staðar um nokkurt skeið en nú hefur hún loksins orðið að veruleika.
Með stofnun félagsins er stigið mikilvægt skref í átt að aukinni samfélagslegri þátttöku og samstöðu um bætta heilbrigðisþjónustu í Fjallabyggð.
Markmið félagsins er skýrt. Að efla gæði þeirrar þjónustu sem Heilbrigðisstofnun Norðurlands í Fjallabyggð veitir og hafa velferð íbúa ávallt í forgrunni, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.
Tæki og búnaður í forgangi
Megintilgangur Hollvinafélagsins er að afla fjár með fjölbreyttum hætti, meðal annars með viðburðum, styrkjum og öðrum fjáröflunum. Fjármununum verður varið til kaupa á tækjum og búnaði fyrir HSN í Fjallabyggð, með það að markmiði að bæta aðstöðu, styrkja faglegt starf og auka gæði þjónustunnar til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins.
Félagið er jafnframt vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til bættrar heilbrigðisþjónustu í nærumhverfinu. Nú þegar hafa borist fyrirspurnir um félagsaðild og er öllum þeim sem styðja markmið félagsins velkomið að ganga til liðs við það.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið hollvinir.fjallabyggd@gmail.com og telst aðild gild þegar viðkomandi hefur óskað eftir inngöngu og verið skráður í félagaskrá.
Frjáls framlög styðja starfsemina
Félagið innheimtir ekki félagsgjald, en tekið verður á móti frjálsum framlögum frá þeim sem vilja styðja starfsemina. Nánari upplýsingar um styrktarleiðir og fyrirkomulag verða kynntar síðar.
Stofnendur félagsins eru Örn Danival Kristjánsson, Þórey Sigurjónsdóttir, Valþór Stefánsson, Anna Gilsdóttir og Rósa Ólafsdóttir.
Viðburðir verða auglýstir síðar
Viðburðir á vegum félagsins verða auglýstir sérstaklega á Facebook-síðu Hollvinafélags HSN Fjallabyggðar.





