Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fjallaði um stöðu hagkerfisins á Alþingi í gær þegar rætt var um efnahagsmál, verðbólgu og atvinnuleysi. Í umræðunni benti hún á að hagkerfið stæði frammi fyrir óvenjulegum áskorunum, meðal annars vegna tvískipts vinnumarkaðar sem ekki hefði sést um langt skeið.

Forsætisráðherra sagði atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara vera um 10 prósent, á meðan það væri varla mælanlegt meðal íslenskra ríkisborgara. Slíkt misræmi hefði í för með sér að hefðbundin hagstjórnartæki næðu með ólíkum hætti til ólíkra hópa í samfélaginu.

Hún sagði að um nýjar aðstæður væri að ræða sem stjórnvöld þyrftu að bregðast við.

Í janúar 2026 voru 17.400 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 7,3%, hlutfall starfandi var 75,7% og atvinnuþátttaka 81,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 2,8 prósentustig á milli desember 2025 og janúar 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 1,1 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 1,1 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 8,3% í janúar 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 19.700, hlutfall starfandi var 74,5%, sem samsvarar tæplega 217.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81,2% eða um 237.600 manns á vinnumarkaði.

Samanborið við sama mánuð 2025 jókst mælt atvinnuleysi um 3,1 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,3 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,8 stig. Leitni árstíðaleiðréttingar á atvinnuleysi sýnir sambærilega þróun, síðustu tólf mánuði hefur það aukist úr 3,8% í janúar 2025 í 5,3% í janúar 2026.