Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis færði á dögunum Sjúkrahúsinu á Siglufirði loftdýnu að gjöf.
Samkvæmt Jónbjörgu K. Þórhallsdóttur deildarstjóra fór loftdýnan strax í notkun hjá einstakling með krabbamein sem liggur inni á Sjúkrahúsinu.
„Svona dýna skiptir miklu máli fyrir einstaklinga sem eru rúmfastir og geta lítið hreyft sig þar sem þeir eru flestir útsettir fyrir legusárum eða eiga í erfiðleikum með hreyfingu vegna verkja“ sagði Jónbjörg.
Stjórn og starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis vona að loftdýnan eigi eftir að koma að góðum notum á Sjúkrahúsinu á Siglufirði. Við hvetjum einstaklinga sem búa á Siglufirði og í nágrenni að hafa samband við félagið til að fá upplýsingar varðandi þjónustu sem er í boði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbmein og aðstandendur þeirra.
Á myndinni eru Júlía B. Birgisdóttir starfsmaður, Jónbjörg K. Þórhallsdóttir deildarstjóri og Gróa María Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur.
Mynd/Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis