Verkefninu Fjölmenning í Fjallabyggð var formlega hleypt af stokkunum í Brimsölum á Ólafsfirði í dag við góðar undirtektir gesta. Fjölmenni sótti viðburðinn þar sem brasilískir tónar settu svip á samkomuna þegar þeir Guito Thomas og Rodrigo Lopes léku fyrir gesti. Boðið var upp á vöfflur og kaffi og skapaðist notaleg stemning þar sem íbúar komu saman og fögnuðu upphafi verkefnisins.

Að sögn aðstandenda er verkefninu ætlað að varpa ljósi á fjölbreytt samfélag Fjallabyggðar. Um ellefu prósent íbúa sveitarfélagsins eru af erlendum uppruna og markmiðið er að auka sýnileika þeirra í nærumhverfinu, segja frá starfi og daglegu lífi fólksins sem hefur sest þar að og veita jafnframt innsýn í menningu þess og uppruna. Þetta verður gert með frásögnum og ljósmyndum sem kynna einstaklingana og þeirra bakgrunn.

Verkefnið mun standa fram á haust. Á þeim tíma verður meðal annars efnt til reglulegra kaffispjalla í Brimsölum þar sem íbúar fá tækifæri til að hittast, ræða saman og kynnast betur.

Lokahnykkurinn verður fjölmenningarhátíð sem haldin verður í Brimsölum og Tjarnarborg. Þar verður fjölbreytt dagskrá með tónlist, matarsmakki, kynningum, ljósmyndasýningu og útgáfu vefbókar um verkefnið. Þá verða einnig lifandi umræður þar sem gestir fá tækifæri til að ræða fjölmenningu og samfélag Fjallabyggðar.

Með tilkynningu um verkefnið í Facebook-hópnum Ólafsfirðingafélagið birti Björn Valdimarsson mynd frá viðburðinum. Á myndinni má sjá þau Idu Semey, verkefnisstjóra verkefnisins, ásamt tónlistarmönnunum Guito Thomas og Rodrigo Lopes.

Tengt efni:

Fjölmenning í Fjallabyggð – Auka sýnileika íbúa af erlendum uppruna