Íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 19 íbúa frá 1. des. 2024 og nemur fjölgunin 0.9%.
Þann 1. des 2024 voru 2.005 íbúar búsettir í sveitarfélaginu, 1. des. 2023 voru þeir 2.010.
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 290 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. mars 2025 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 106 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 45 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 15 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 103 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósarhreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósarhrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 3,9% en íbúum þar fjölgaði um 12 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Árneshreppi og Kaldraneshreppi eða um 3,4%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 27 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 35 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 317 á tímabilinu eða um 22,5%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.