Davíð Máni er tónlistarmaður frá Akureyri sem hefur verið rækilega duglegur í grasrótar senunni þar síðastliðin ár.

Meðal annars hefur hann sinnt skipulagningu á tónleikum eins og Norðanrokk II og Grasrót 2025 ásamt félögum sínum og starfað í hljómsveitum á borð við Miomantis, Ara Orrason, Drengurinn Fengurinn, Dream The Name og fleiri.

Í sumar er væntanleg fyrsta plata hans undir eigin nafni, The Mancave Tapes, þann 11. júlí og 30. maí sendi hann frá sér fyrsta stökulinn, Pool Of Sorrow, sem kominn er í spilun á FM Trölla.

Pool Of Sorrow er lag sem Davíð samdi um 15 ára aldur ásamt vini sínum, Enok Evusyni, sem sá um hluta af texta. Ekkert varð úr laginu fyrr en Davíð ákvað að taka upp sýna eigin plötu með hljóðmanninum Hallgrími Ómari Jónassyni. Davíð sá sjálfur um að spila inn allan gítar, bassa og trommur, og mest allan söng, en það vantaði eitthvað í lagið svo Davíð heyrði í vini sínum, Ara Orrasyni, sem setti inn raddanir og auka söng.

Útkomunni má líkja við 90’s grunge og er að hluta til mjög líkt Nirvana. En einnig sá Davíð um mest allt undirspil og söng á plötunni sem er væntanleg 11. júlí.

Lagið á spotify: https://open.spotify.com/track/6gIocbd50CEpB9fWN1qG83?si=bde13eccaea04fa6

Tónlistarmyndband: https://www.youtube.com/watch?v=mXD5UuF8Okg

Facebook síða: https://www.facebook.com/profile.php?id=61574637862340

Instagram síða: https://www.instagram.com/davidmanimakesmusic/


Myndir: Andrés Rein Baldursson