Yfir jólahátíðina þarf að huga vel að því að réttindi starfsfólks séu virt, sérstaklega þeirra sem vinna í vaktavinnu á hótelum og veitingahúsum. Helstu brotin yfir hátíðarnar snúa að því að fólk fái ekki vinnu í samræmi við starfshlutfall og að breytingum á vaktaplani. ATH! eftir vinnutímastyttinguna þá gildir önnur regla varðandi vaktavinnu fyrir starfsmenn hjá ríki og sveitarfélögum.
Breytingar sem urðu frá 1. maí 2021 má sjá hér!
Vaktavinnufólk sem vinnur skv. kjarasamningi SGS og Eflingar og hótel og veitingahúsa ætti að hafa þessi atriði í huga yfir hátíðarnar:
- Vaktir þurfa að endurspegla starfshlutfall í ráðningarsamningi.
- Ekki má breyta vöktum eða taka af vaktir ef það skerðir starfshlutfall og hefur þ.a.l. neikvæð áhrif á laun.
- Ef fyrirtæki lokar yfir hátíðarnar þarf að tilkynna starfsfólki um það með a.m.k. mánaðar fyrirvara. Æskilegt er að þessi ákvörðun liggi fyrir eigi síðar en 1. apríl. Að öðrum kosti á starfsfólk sem þegar hefur tekið orlofið sitt hugsanlega rétt á launum á meðan lokað er.
- Starfsfólk í vaktavinnu á að fá greitt álag á stórhátíðardaga og aðra frídaga um jólin.
Frídagar um jól og áramót eru:
- aðfangadagur eftir kl. 12.00 – 90% álag
- jóladagur – 90% álag
- annar í jólum – 45% álag
- gamlársdagur eftir kl. 12.00 – 90% álag
Í vaktavinnu eru til tvær reglur um greiðslur á þessum dögum. Annarsvegar hjá þeim sem fá vetrarfrí og svo hjá hinum sem ekki eru með vetrarfrí.
1) Yfirvinnu- eða stórhátíðarkaup ásamt óskertum dagvinnulaunum
Greitt er yfirvinnu- eða stórhátíðarkaup fyrir vinnu á rauðum degi auk þess sem starfsmaður heldur óskertum dagvinnulaunum. Við þess konar fyrirkomulag er almennt gert ráð fyrir að starfsmaður sé í fríi á rauðum dögum, nema um annað hafi verið samið eða leiði af eðli starfseminnar.
2) Vaktaálag og vetrarfrí
Greitt er vaktaálag fyrir vinnu á rauðum degi og er það almennt 45% á frídögum og 90% á stórhátíðardögum.
Auk vaktaálags ávinnur starfsmaður sér inn 12 vetrarfrídaga miðað við ársstarf (96 dagvinnustundir m.v. 40 stunda vinnuviku) fyrir almenna frídaga og stórhátíðardaga sem falla á mánudaga til föstudaga. Sé vinnustað lokað á þeim dögum eða frí veitt fækkar vetrarfrídögum samsvarandi.
í kjarasamningi SGS og Eflingar og hótel og veitingahúsa eru ákvæði um vetrarfrídaga vaktavinnumanna vegna rauðra daga:
- 3. kafli vegna veitinga- og gistihúsa o.fl.
- 22. kafli vegna ræstingar í vaktavinnu
Mynd/pixabay