Á heimasíðu Landsambands smábátaeiganda segir að tölur um afla á strandveiðum liggja nú fyrir. Til að auðvelda mönnum upplýsingaleit hefur LS tekið saman í eina skrá tölulegar upplýsingar um veiðarnar í ár og í fyrra.
Helmingi fleiri bátar með yfir 30 tonn en í fyrra – 82 bátar náðu því marki
- Misjafnt gengi milli svæða – bátar á A og B svæði með meiri afla en í fyrra, en minna hjá bátum á C og D svæði.
- Afli að meðaltali 17,8 tonn – mestur á svæði A, 21,5 tonn.
- 9 bátar nýttu alla 48 dagana sem í boði voru, 23 bátar réru umfram þann fjölda í fyrra.
- Stóraukin veiði á ufsa – afli fór úr 355 tonnum í 609 tonn. Bátar á svæði D með helming alls ufsaflans.
- Alls 548 bátar stunduðu strandveiðar í ár sem er fækkun um 46 milli ára.
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir