Í vikunni voru undirritaðir samningar um sóknaráætlun við átta landshlutasamtök sveitarfélaga til næsta fimm ára í Norræna húsinu.

Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV ásamt nýjum ráðherrum, Eyjólfi Ármannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, skrifuðu undir samning um nýja Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029.

Það er samdóma álit þeirra sem koma að sóknaráætlunum að þær hafi sannað gildi sitt fyrir byggðir landsins en verkefnið byggir á tólf ára sögu.

Ný Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029 var samþykkt á 8. haustþingi SSNV og hefur tekið gildi.

Sjá nánar: HÉR

Mynd/SSNV