Mjög stórt snjóflóð féll yfir Siglufjarðarveg skammt utan við Siglufjörð og fór alla leið út í sjó. Vegurinn er lokaður á meðan aðstæður eru metnar og unnið er að frekari úttekt á svæðinu.

Frá þessu er greint á vef RÚV.

Samkvæmt frétt miðilsins féll flóðið úr Selskál í Hvanneyrarhnjúki, skammt utan við bæinn, á svæðinu milli Strákaganga og Siglufjarðar. Snjóflóðið fór yfir þjóðveginn og hélt áfram niður í sjó.

Óliver Hilmarsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við RÚV að flóðið sé mjög umfangsmikið. Hann segir það vera marga metra á þykkt og að það hafi jafnvel tekið með sér ljósastaura á svæðinu. Talið er að snjóflóðið gæti verið allt að 200 metra breitt þar sem það fór yfir veginn.

Siglufjarðarvegur hafði verið lokaður vegna snjóflóðahættu þegar flóðið féll. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær það féll, en talið er að það hafi gerst seint í gærkvöldi.

Mikil úrkoma og snjókoma hafa verið á Tröllaskaga undanfarna daga og hefur snjóflóðahætta verið talin töluverð á svæðinu. Að sögn sérfræðinga getur tekið talsverðan tíma að ryðja flóðið af veginum þar sem það er bæði þykkt og umfangsmikið.

Hægt er að horfa á myndband af snjóflóðinu í frétt á ruv.is.

Mynd: Skjáskot úr myndbandi sem birtist í frétt á ruv.is.