Umhverfisdagar Skagafjarðar 2025 eru haldnir dagana 5. – 17. maí.
Í ár eru 36 ár frá því að umhverfisdagar voru fyrst haldnir í firðinum. Íbúar eru hvattir til að hlúa að umhverfinu og er takmarkið,snyrtilegra og fegurra umhverfi. Mikilvægt er að íbúar, fyrirtæki, býli og félagasamtök taki höndum saman, tíni rusl, komi bílhræjum, vélhræjum og öðrum hræjum í endurvinnslu. Snyrti til í og við lóðir sínar og lönd, og á nærliggjandi opnum svæðum. Jafnframt minnum við á að einstaklingar geta losað sig við úrgang gjaldfrjálst á móttökustöðvum sveitarfélagsins.
Lóðarhafar eru hvattir til þess að halda vexti trjáa og runna á lóðum innan lóðarmarka og stuðla þannig að auknu öryggi vegfarenda.
Allur almennur garðaúrgangur s.s jarðvegur, gras/hey og smærri greinar eiga að fara í jarðvegstippinn rétt sunnan við leikskólann Ársali, austan við veginn Borgargerði á Sauðárkróki, móttökustöðina í Varmahlíð eða jarðvegstipp sunnan við Hofsós. Stærri greinar, tré og steypuafgangar, hellur, flísar o.þ.h fer upp í gryfjur við Gránumóa ofan Sauðárkróks.
Sameinumst öll í átakinu, lögum til og höldum Skagafirði snyrtilegum