Í óveðrinu síðustu daga rak veðurdufl inn Siglufjörð og strandaði í Hvanneyrarkrók.

Björgunarskipið Sigurvin fór eftir duflinu og kom því á land seinnipartinn í gær.

Meðfylgjandi mynd tók Sveinn Snævar Þorsteinsson af veðurduflinu.